Við sérhæfum okkur í djúphreinsun á teppum í stigahúsum og hjá fyrirtækjum. Teppahreinsun tryggir hreinlæti, góða lykt og líftíma teppisins. Fyrir stærri húsfélög og vinnustaði er hægt að hafa þetta í reglulegum þrifum árlega eða tveggja ára fresti.
Ferlið virkar þannig að:
Byrjað er að framkvæma ítarlega skoðun á teppinu til að bera kennsl á tegund teppis, hversu mikið það er óhreint og mögulega bletti eða vandamál sem þarf að skoða betur eða meðhöndla sérstaklega. Eftir það byrjar undirbúningurinn fyrir hreinsun þar sem við flytjum alla flytjanlega hluti og verndum nærliggjandi hluti fyrir þeirri vinnu sem er frammundan. Þar sem teppið er hvað skítugast er svæðið formeðhöndlað með umhverfisvænum hreinsiefnum til að losa óhreinindi betur.
Eftir þetta hefst djúphreinsunin sjálf þar sem við byrjum á því að bleyta upp teppið með sápu, sem er svo nuddað með bursta til að leysa upp drulluna. Eftir það er djúphreinisvélinn notuð til að soga upp óhreinindi, ofnæmisvalda og bakteríur. Fyrir sérstaklega erfiða bletti eru sértækar blettameðferðir notaðar til að tryggja bestu mögulegu niðurstöður. Á mörgum svæðum förum við 2 – 3 umferðir eftir þörfum.
Eftir að þrifum er lokið er lokaúttekt framkvæmd til að tryggja allt uppfylli okkar gæðakröfur.