Frá því fyrirtækið var stofnað fannst okkur mikilvægt að setja okkur skýra stefnu í því hvernig við ætlum að koma fram við starfsmenn, viðskiptavini, samfélagið og umhverfi. Okkar mottó er að gleði og gæði í starfi fari hönd í hönd. Þar af leiðandi leggjum við okkur fram að fylgja þessum skýru línum sem við höfum sett okkur.
Vinnustaðurinn
Við erum fjölskyldufyrirtæki og viljum halda í þær rætur og hugsun. Mikilvægast af öllu er að fólki líði vel í vinnunni. Gleði og gæði fara saman.– Við líðum ekki einelti á nokkurn hátt.
– Gagnsæi launa og sanngjörn laun.
– Sveigjanlegur vinnutími.
– Heilsa í fyrirrúmi.
– 100% kynjajafnrétti og engin mismunun.
– Hagnaður greiddur til starfsmanna þegar vel gengur.
Samfélagið
Við viljum bera ábyrgð í því samfélagi sem við búum í. Tryggir og auðmjúkir stjórnarhættir. Við værum ekkert án þess samfélags sem við búum í. Þetta snýst ekki bara um að græða, heldur einnig um að gefa til baka. Þar af leiðandi tökum við ávalt 25% af þeim hagnaði sem við greiðum út og gefum til okkar duglegu starfsmanna og samfélagsins.– Gefum fólki með skerðingar tækifæri til vinnu. Reynslan hefur sýnt að þau skila alveg jafn góðri vinnu.
– Styðjum við góðgerðarmál innanlands. Þar er af nógu að taka.
Viðskiptavinir
Góð samskipti við viðskiptavini er grunnurinn að góðri þjónustu. Þau skulu vera skýr og sanngjörn.– Veitum framúrskarandi þjónustu.
– Bregðumst vel við öllum kvörtunum.
– Skýrir og sanngjarnir samningar.
– Ekkert okur, ekkert bull.
– Verkið er klárað alla leið.
– Þjónustulund og jákvæð samskipti.
Umhverfið
Að reka fyrirtæki fylgir mikil ábyrgð. Við viljum tryggja að okkar vinna og verk hafi jákvæð áhrif á umhverfið en ekki öfugt.– Notum náttúruleg efni við þrif þar sem hægt er.
– Flokkum rusl í helstu flokka.
– Endurvinnum það sem hægt er.
– Færum okkur úr bensín yfir í rafmagn.