Við höfum sérhæft okkur í húsfélagsþrifum frá upphafi. Við leggjum okkur fram við að gera meira fyrir minna og klára verkið alla leið. Við bjóðum upp á heildrænar lausnir í þrifum á sameign og leitumst við að skila af okkur verki sem okkar viðskiptavinir eru ánægðir með. Til þess að tryggja gæðin notum við gæðakerfi sem fylgir eftir þrifum hverju sinni og gefur okkur möguleika á að breyta og bæta þrifin eftir þörfum. Einungis rukkað fyrir þau skipti þar sem húsfélagið er ánægt með þrifin og allt eftir bókinni.
Þjónusta í boði
Regluleg þrif á sameign
Þetta er mikilvægasta þjónustan sem við veitum. Við höfum frá stofnun lagt sérstaka áherslu á að vanda til verks. Sjá hér að neðan nánari útlistingu.
Alþrif á sameign
Líkt og jólahreingerningin sem þú framkvæmir sjálfur er mikilvægt að taka alþrif á 1 – 2 ára fresti. Sjá nánar hér.
Djúphreinsun
Gott viðhald á teppum og mottum í sameign, tryggir hreinlæti, góða lykt og líftíma. Við mætum til þín og djúphreinsum teppin og mottur. Sjá nánar hér.
Bílakjallaraþrif
Hreinn bílakjallari er mikilvægur fyrir allt hreinlæti í húsinu. Það er vitað mál að óhreinindin þar berast inn um húsið með tímanum og það getur skipt sköpum að hafa hann hreinann.
Glerþrif og gluggaþvottur
Við bjóðum upp á gæða glerþrif fyrir húsfélög. Við leggjum mikinn metnað í því að skila af okkur góðu verki. Við getum verið með þrifin í reglulegri þjónustu.
Mottulausnir
Við aðstoðum þig við að velja mottur fyrir þínar þarfir. Mikilvægt er að vera með góðar mottur við alla innganga. Sjá nánar hér.
Sérlausnir
Við bjóðum upp á ýmiskonar sérlausnir fyrir mismunandi þarfir húsfélaga. Við aðlögum okkur að ykkar þörfum.
Garðyrkja og sláttur
Allt á einum stað. Á sama tíma og við sjáum um þrifin þá getum við séð um sláttinn, hekkið og almenna garðyrkju.
Regluleg þrif á sameign
Teppi í sameign ryksuguð
Anddyri ryksugað og skúrað
Snertifletir eru þrifnir
Þurrkað af yfirborðsflötum
Blettir á veggjum
Lyfta þrifin, ryksuguð og skúruð
Stigahandrið þurrkað af
Hurðakarmar þrifnir
Póstkassar eru þrifnir
Gólflistar eru þrifnir
Þvottahús og tæknirými þrifið reglulega
Hjólageymsla er þrifin reglulega
Hvernig fara þrifin fram?
Allir okkar starfsmenn fá þjálfun í þrifum og þeirri tækni sem tryggir gæði og vel klárað verk. Sjá samfélagsstefnu okkar hér.